Umsagnir um viðbætur eru leið til að deila skoðunum þínum um þær viðbætur sem þú hefur sett inn og notað. Umsjónarmannateymið okkar áskilur sér rétt til að hafna umsögnum eða fjarlægja allar umsagnir sem ekki fylgja þessum leiðbeiningum.
Leiðbeiningar til að skrifa frábæra umsögn
Gera:
- Skrifaðu eins og þú sért að segja vini þínum frá reynslu þinni af viðbótinni.
- Haltu umsögnum skýrum og auðveldum að skilja.
- Gefðu upp nákvæm og hjálpleg atriði. Til dæmis:
- Virkaði viðbótin eins og við var að búast?
- Hvaða eiginleika líkaði þér við eða ekki?
- Var viðbótin hjálpleg?
- Var hún auðveld í notkun?
- Muntu halda áfram að nota hana?
- Taktu þér tíma til að lesa yfir umsögnina áður en þú sendir hana inn, til að laga málfar og fækka stafsetningarvillum.
Ekki:
- Senda inn eins-orðs umsagnir á borð við "Frábært!", "Dásamlegt," eða "Lélegt".
- Birta tæknilegar útlistingar, biðja um aðstoð eða stinga upp á eiginleikum. Notaðu frekar þær leiðir sem hver viðbót býður uppá til að koma slíku á framfæri. Þú finnur þær í hlutanum "Nánari upplýsingar" á ítarlegri síðu viðbótarinnar.
- Skrifa umsagnir um viðbætur sem þú hefur ekki notað persónulega.
- Nota blótsyrði, klæmast eða málfar sem hægt sé að flokka sem hatursorðræðu.
- Hafa með HTML-merkingar, frumkóða eða kóðadæmi. Ætlast er til að umsagnir séu einungis texti.
- Gefa rangar yfirlýsingar, skamma höfunda viðbóta eða níða þá persónulega.
- Hafa með tölvupóstfangið þitt eða annarra, símanúmer eða aðrar persónulegar upplýsingar.
- Senda inn umsagir um viðbætur sem þú eða þínir hafa skrifað eða standa fyrir.
- Gagnrýna viðbót fyrir eitthvað sem henni er ætlað að gera. Til dæmis, að setja inn neikvæða umsögn um að viðbót birti auglýsingar eða safni gögnum, þegar það er einmitt hlutverk viðbótarinnar, eða ef viðbótin virkar ekki án gagnasöfnunar.
Algengar spurningar varðandi umsagnir
Hvernig get ég tilkynnt vafasama umsögn?
Tilkynntu eða flaggaðu allar vafasamar umsagnir með því að smella á "Tikynna þessa umsögn", hún verður þá send inn til yfirferðar. Umsjónarteymið mun styðjast við leiðbeiningar fyrir gerð umsagna til að meta hvort eyða skuli umsögninni eða ekki og að birta hana aftur á vefsvæðinu.
Ég er höfundur viðbótar, get ég svarað umsögnum?
Jú, höfundar viðbóta geta svarað einu sinni hverri umsögn. Þú getur líka sett upp spjallþráð á spjallsvæðinu okkar, þar sem hægt er að ræða og fylgjast með viðbrögðum notenda.
Ég er höfundur viðbótar, get ég eytt neikvæðum umsögnum eða einkunnum?
Almennt séð nei. En ef umsögnin stenst ekki kröfur sem gerðar eru í leiðbeiningunum hér fyrir ofan, geturðu smellt á "Tikynna þessa umsögn" og láta umsjónarmenn yfirfara hana. Ef umsögn inniheldur körtun sem ekki fær lengur staðist þar sem ný útgáfa víðbótarinnar sé komin út, gætum við íhugað að eyða umsögninni.