Leikjavalið í júlí

Í hverjum mánuði bætist fjöldi leikja við á Play. Við í ritstjórn Play ætlum að deila nýju uppáhaldsleikjunum okkar til að hjálpa þér að velja. Leikir í kastljósinu hafa heillað okkur upp úr skónum með stórkostlegu myndefni, notendavænni spilun eða annarri snilld. Við erum þess fullviss að þú fellur fyrir leikjum mánaðarins.
Efst á baugi í júlí
Star Wars: Hunters™
Zynga
Innkaup í forriti
4,6
34,3 þ. umsögn
1 m.+
Niðurhal
Efnisflokkun
Fyrir unglinga
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Mættu andstæðingum með því að nota Máttinn í stjörnubardögum með fjórum gegn fjórum þar sem aðeins hin sterku lifa af. Að hafa verið kastað inn á vígvöll skylmingaþræla djúpt í iðrum plánetunnar Vespaara neyðir þig til að treysta á veiðimannateymið þitt til að skipuleggja varnarbaráttuna og tryggja sigur.
Allt frá stormsveitarmönnum til vélmenna og váka er fjölbreytt samsafn veiðimanna til að prófa; hver og einn státar af einstakri færni til að snúa gangi orrustunnar við. Margfræg hljóðrás og kunnuglegt baksvið flytur þig beint inn í Star Wars-heiminn og gerir þennan fjölspilunar leikvangsskotleik að einskærri gleði fyrir öll sem hafa gaman af kvikmyndunum.
Hvort sem þeir reyndu á, veittu okkur gleði, ró eða hræddu úr okkur líftóruna þá eru þetta leikirnir sem standa upp úr þennan mánuðinn.
Fyrir þau sem vilja eitthvað óhefðbundnara bendum við á safn bestu indíleikjanna þar sem skoða má bestu nýju indíleiki mánaðarins á Play.
Veltirðu fyrir þér hvaða leiki þú getur hlakkað til að spila næstu mánuðina? Skoðaðu forskráningarsafnið okkar og skráðu þig til að fá sérstök fríðindi og bónusa.